Tilraunaverkefni um heimaslátrun undirritað

Frá undirritun samkomulagsins. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Guðfinna Harpa Árnadóttir, bóndi á Straumi í Hróarstungu og formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Mynd:stjornarradid.is
Frá undirritun samkomulagsins. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Guðfinna Harpa Árnadóttir, bóndi á Straumi í Hróarstungu og formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Mynd:stjornarradid.is

 

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Guðfinna Harpa Árnadóttir, bóndi á Straumi í Hróarstungu og formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, undirrituðu í gær samkomulag um tilraunaverkefni um heimaslátrun. Verkefninu er ætlað að leita leiða til þess að auðvelda bændum að slátra sauðfé heima til markaðssetningar þannig að uppfyllt séu skilyrði regluverks um matvælaöryggi og gætt sé að dýravelferð og dýraheilbrigði. Þannig er leitast við að bæta afkomu sauðfjárbænda, stuðla að bættri dýravelferð og sterkari tengingu á milli neytenda og íslenskra frumframleiðenda matvæla, að því er segir á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

„Þetta er mikilvægt skref í átt að því að auka frelsi bænda, auka verðmætasköpun og hvetja til nýsköpunar og þróunar. Sauðfjárbændur hafa lengi kallað eftir að fá tækifæri til að skoða möguleika þess að slátra heima og selja á markaði og styrkja þannig böndin milli neytenda og framleiðenda. Með þessu tilraunaverkefni erum við að svara þessu ákalli og leita leiða til að framkvæma þetta innan þess regluverks sem gildir,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Aðgerðahópur sauðfjárbænda um heimaslátrun vann tillögur að fyrirkomulagi verkefnisins í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið sem fer með stjórn þess og mun taka saman niðurstöður við lok þess. Auglýst verður eftir þátttakendum á næstu dögum en áætlað er að sláturdagsetningar liggi fyrir í lok ágúst og að niðurstöður verkefnisins liggi fyrir í árslok 2020.

Með verkefninu er leitast við að auka möguleika bænda á að slátra heima og selja sínar afurðir. Til þess að unnt sé að markaðssetja afurðir sem slátrað hefur verið heima þarf að uppfylla ákvæði regluverks um matvælaöryggi, dýravelferð og hollustuhætti. Fyrirhugað er að bændur framkvæmi heimaslátrun sjálfir á bæjunum og opinbert eftirlit verði framkvæmt af dýralæknum á vegum Matvælastofnunar. Kjöt af gripum sem slátrað verður í tilraunaverkefninu verður ekki selt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir