Tiltektardagur á Blönduósi á morgun

Í tilkynningu frá Blönduósbæ er minnt á tiltektardag bæjarins á morgun, fimmtudaginn 14. maí. „Hjálpumst að við að fara yfir okkar nánasta umhverfi og hreinsa til,“ segir í tilkynningunni.

Þar er jafnframt minnt á að gámasvæðið er opið frá kl. 13:00-17:00 og fólk hvatt til að fara með ruslið sitt þangað en áréttað að starfsmenn Blönduósbæjar munu ekki vera á ferðinni og safna saman rusli.

„Endum svo daginn á að koma saman við félagsheimilið kl. 18:00 með góða skapið okkar og njótum góðs matar sem sveitarstjórnin mun töfra fram. Tökum nú höndum saman og gerum bæinn okkar enn fallegri,“ segir að lokum í tilkynningunni.

 

Fleiri fréttir