Tími nagladekkja er liðinn
Í nýjasta tölublaði Gluggans vekur lögreglan á Blönduósi athygli bifreiðareigenda og ökumanna á því að tími nagladekkjanna er fyrir nokkru liðinn og nú sé vonandi engin þörf á þeim lengur. Lögreglan vill brýna fyrir umráðamönnum ökutækja að skipta yfir á ónegld dekk svo þeir komist hjá sektum og valdi ekki óþarfa skemmdum á vegum og götum.
Lögreglan á Blönduósi vill einnig ítreka að ökumenn vandi lagningu bifreiða sinna og leggur áherslu á að gangstéttir og graseyjur séu ekki ætlaðar fyrir bifreiðastæði og ætíð skal leggja eftir þeim reglum sem um það gilda. Húni.is segir frá þessu.