Tískufatnaður í Félagsheimilinu á Blönduósi

Fatasala frá nokkrum tískuvöruverslunum verður í Félagsheimilinu á Blönduósi nk. föstudag, 9. mars, kl. 12-18. Fötin koma úr verslununum GS Akureyri, Diddu Nóa, Galleri og Gallerí stelpum frá Akureyri. Fatnaðurinn er á konur á öllum aldri og einnig verður nokkurt úrval af herrafatnaði frá Galleri.

Samkvæmt heimildum Húna.is standa þær Sibba danskennari frá Blönduósi og Guðrún Jóhannsdóttir fyrir þessum viðburði en þær hafa áður komið með fatnað á Blönduós og tekist vel til.

Fleiri fréttir