Tískusýning í Heimilisiðnaðarsafninu
Hluti af fjölbreyttri dagskrá Húnavöku var meðal annars tískusýning í Heimilisiðnaðarsafninu á sunnudaginn 17. júlí. Margmenni var komið saman til að bera augum á fallegan klæðnað veflistakonunnar Guðrúnar J. Vigfúsdóttur, en sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins er einmitt úr smiðju hennar. Fötin sem voru frá tímabilinu 1965-1985 voru sýnd af sýningarstúlkum af svæðinu, sem Elín Sigurðardóttir forstöðukona safnsins útvegaði. Myndir og nánari upplýsingar um tískusýninguna á vef Húnahornsins hér: http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=7868