Tíundu bekkingar heimsækja FNV

Það hefur tíðkast á undanförnum árum að 10. bekkingar grunnskólanna á Norðurlandi vestra hafi komið í kynningarferð í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Þá hafa þau skoðað bóknámshúsið, verknámið og heimavistina. Síðan hefur náms- og starfsráðgjafi skólans ásamt aðstoðarskólameistara og fulltrúum frá nemendafélagi skólans heimsótt alla grunnskólana á svæðinu og kynnt þeim skólastarfið, þ.e. námsbrautir við skólann, inntökuskilyrði, umsóknarferli o.s.frv.

Nú í vetur kviknaði sú hugmynd innan Vinateymis Skagafjarðar að styrkja samstarf skólastiganna enn frekar og bjóða 10. bekkingum einnig að sækja tíma með nemendum Fjölbrautaskólans. Þetta var framkvæmt þannig að grunnskólanemendur gátu valið námsbraut sem þau vildu kynnast og fylgdu síðan eldri nema úr FNV, sem stundar nám á viðkomandi braut, í kennslustundir. Það má því segja að 10. bekkingar hafi fengið að upplifa það að vera framhaldsskólanemi í einn dag.

Tilgangur verkefnisins er að kynna grunnskólanemendum hvernig nám fer fram á framhaldsskólastigi og gera þeim skiptin milli skólastiga auðveldari. Öllum grunnskólum á Norðurlandi vestra var boðið að taka þátt í verkefninu og þáðu allir grunnskólarnir boðið. Nú þegar hafa nemendur frá Grunnskóla Húnaþings vestra, Grunnskólanum á Blönduósi, Höfðaskóla, Varmahlíðarskóla, Húnavallaskóla og Árskóla komið í heimsókn en einungis nemendur frá Grunnskólanum á Hofsósi eiga það eftir.

Heimsóknirnar hafa í alla staði gengið mjög vel og hafa grunnskólanemendur, nemendur við Fjölbrautaskólann og kennarar lýst yfir ánægju sinni með verkefnið.

/Vinaverkefnið.is

Fleiri fréttir