Tjón vegna sauðfjár við Blönduós
Í frétt á heimasíðu VÍS segir að á þriðja hundruð tjóna vegna sauðfjár bárust á borð Vátryggingarfélagsins í fyrra og var starfsvæði VÍS á Blönduósi á meðal þeirra svæða sem nefnd voru þar sem þar sem óhöppin voru flest.
„Þegar sumri hallar og haustar að kemur sauðfé af fjöllum með aukinni slysahættu við vegi landsins. Í fyrra komu 280 tjón til kasta VÍS þar sem ekið var á sauðfé og óku ökumenn burt í flestum tilvika. Í þó nokkrum tilfella var ekið á fleiri en eina skepnu og fjöldi þeirra sem lá í valnum síðastliðið sumar var því nær 330,“ segir á heimasíðunni en flest tjónin urðu á starfsvæði skrifstofa VÍS á Blönduósi, Ísafirði, Þingeyri, Höfn og Egilsstöðum.
Ökumenn eru hvattir til að vera vel á verðbergi næstu daga og vikur haga akstri sínum í samræmi við árstíma. Gæta vel að sér í myrkri, draga úr hraða og sýna sérstaka varkárni þegar skepnur eru sitt hvoru megin við veginn. Bændur eru ekki síður hvattir til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að fyrirbyggja slysin.
„Þótt lausaganga búfjár sé bönnuð víða er full ástæða fyrir ökumenn að gæta vel að sér þar sem annars staðar, því skepnurnar komast stundum þangað sem þær eiga ekki að vera,“ segir loks á heimasíðunni.