Tófa felld við Flúðabakka
Vignir Björnsson skaut tófu við elliheimilið Flúðabakka á Blönduósi þegar hann var að bera út Moggann í gærmorgun. „Við fyrstu sýn fannst mér þetta vera köttur, ég trúði því ekki að þetta væri tófa en svo sá ég það þegar hún tölti af stað,“ segir Vignir í Morgunblaðinu í dag en hann starfar jafnframt sem grenjaskytta hjá sveitarfélaginu Blönduósi.
Um var að ræða unga læðu sem var að skoða gæsirnar á túninu en að sögn Vignis vappa þær mikið um á svæðinu þar í kring. „Það er mjög skrýtið að hún sé komin svona nálægt byggð. Þetta var sérstök hegðun en hún var óhrædd og tölti í rólegheitum yfir götuna og inn á túnið og kippti sér ekki upp við mannaferðir.“
Á þessum árstíma gjóta tófur í grenjum sínum og um miðjan júní fara yrðlingarnir á stjá. Vignir segir vorið gæti hafa verið erfitt fyrir tófuna því að mörg greni eru enn undir snjó. Nú þurfi hann að leita á nýjum stöðum að grenjum, mögulega mun nær byggð en hann hafi áður gert.