Tólf framúrskarandi fyrirtæki á Norðurlandi vestra á lista Creditinfo
Crecitinfo birti nýlega lista yfir tæplega 900 framúrskarandi fyrirtækja á landinu árið 2019 sem eru um 2% íslenskra fyrirtækja. Þetta er í tíunda skipti sem Creditinfo vinnur greiningar á ýmsum þáttum varðandi rekstur og stöðu fyrirtækja á Íslandi og er meginmarkmið greiningarinnar að verðlauna þau fyrirtæki sem standa sig vel og stuðla að bættu viðskiptaumhverfi.
Fyrirtæki þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að komast á lista Creditinfo:
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1, 2 eða 3
- Ársniðurstaða var jákvæð rekstrarárin 2016–2018
- Eiginfjárhlutfall var a.m.k. 20% rekstrarárin 2016–2018
- Framkvæmdastjóri er skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
- Ársreikningi var skilað til RSK fyrir rekstrarárin 2016–2018
- Ársreikningi fyrir rekstrarárið 2018 var skilað á réttum tíma skv. lögum
- Rekstrarhagnaður (EBIT) var jákvæður rekstrarárin 2016–2018
- Rekstrartekjur voru a.m.k. 50 milljónir króna rekstrarárin 2017 og 2018
- Eignir voru a.m.k. 100 milljónir krónar rekstrarárin 2017 og 2018 og a.m.k. 90 milljónir króna rekstrarárið 2016
Alls hlutu 12 fyrirtæki á Norðurlandi vestra viðurkenningu. Þau eru:
- Ámundakinn ehf.
- Friðrik Jónsson ehf.
- Kaupfélag Skagfirðinga svf.
- Norðurtak ehf.
- Ó.K. Gámaþjónusta-sorphirða ehf.
- Raðhús ehf.
- Spíra ehf.
- Steinull hf.
- Steypustöð Skagafjarðar ehf.
- Tengill ehf.
- Vinnuvélar Símonar ehf.
- Vörumiðlun ehf.
Feykir óskar fyrirtækjunum til hamingju með viðurkenninguna.
Nánari upplýsingar um Framúrskarandi fyrirtæki er að finna á heimasíðu Creditinfo https://www.creditinfo.is/framurskarandi/framurskarandi-2019.aspx
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.