Tólf góð ráð fyrir fjarfundi

Umhverfisstofnun hefur tekið saman tólf góð ráð fyrir fjarfundi að sænskri fyrirmynd að því er segir á vef stofnunarinnar. Þar segir að þrátt fyrir að aukinn áhugi fyrir þessu fundarformi sé að einhverju leyti sprottinn af áhyggjum um smithættu hafi fjarfundir einnig marga aðra góða kosti, m.a. að auka skilvirkni með því að lágmarka ferðatíma á milli funda ásamt því að minnka koltvíoxíðslosun af völdum ferða.

Umhverfisstofnun, sem er með starfstöðvar um land allt, hefur góða reynslu af fjarfundum og hefur fjarfundatækni þróast mikið á undanförnum árum. Á vef SSSNV segir frá því að á dögunum héldu samtökin sína fyrstu vefráðstefnu sem gekk vonum framar. Þátttakendur á ráðstefnunni voru staðsettir á Hvammstanga, Akranesi, Reykjavík og í Vestmannaeyjum. Á ráðstefnunni var farið yfir tækifæri fyrirtækja, starfsfólks og sveitarfélaga þegar kemur að störfum án staðsetningar.

SSNV býður sveitarfélögum, fyrirtækjum og einstaklingum upp á aðstoð fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í fjarfundum. Hægt er að hafa samband við Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur á netfangið sveinbjorg@ssnv.is til að bóka tíma fyrir aðstoð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir