Tólf rjúpnaveiðidagar í ár

Veiðidagar rjúpu verða tólf talsins í ár og skiptast á fjórar helgar á tímabilinu 24. október til 16. nóvember 2014. Náttúrufræðistofnun Íslands metur veiðiþol rjúpnastofnsins 48.000 rjúpur. Sölubann á rjúpum er í gildi og fylgir Umhverfisstofnun því eftir. Þetta kemur fram á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Meginþættir veiðistjórnunar á rjúpu hafa verið þrír; Í fyrsta lagi sölubann, í öðru lagi hvatning um hófsemi og að lokum sóknardagar og hefur heildarveiði rjúpu minnkað töluvert á undanförnum árum. Eru veiðimenn hvattir til að veiða ekki fleiri rjúpur en hver og einn þarf auk þess sem þeir eru beðnir að gæta þess að særa ekki fugl umfram veiði. Veiðimenn eru hvattir til góðrar umgengi um landið.

Veiðitímabilið skiptist á fjórar helgar með eftirfarandi hætti:
Föstudaginn 24. október til sunnudags 26. október. Þrír dagar.
Föstudaginn 31. október til sunnudags 2. nóvember. Þrír dagar.
Föstudaginn 7. nóvember til sunnudags 9. nóvember. Þrír dagar.
Föstudaginn 14. nóvember til sunnudags 16. nóvember. Þrír dagar.

Fleiri fréttir