Töltmót í Arnargerði

Í kvöld klukkan 20:00 verður haldið töltmót í Reiðhöllinni Arnargerði og er það hluti af mótaröð Neista. Keppt verður í T7, sem er einn hringur hægt tölt og einn hringur frjáls ferð. Keppt er í unglingaflokki þ.e. sextán ára og yngri, áhugamannaflokki og opnum flokki.

Mótaröð Neista er stigakeppni fyrir Neistafélaga, þar sem þrír stigahæstu keppendur í hverjum flokki fyrir sig hljóta verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótum vetrarins.

Frítt er inn á mótið og eru allir hvattir til að mæta. Nemendur í 10. bekk í Blönduskóla verða með veitingasölu í sjoppunni.

Fleiri fréttir