Töltmót og Æskulýðssýning
Opið töltmót verður haldið nk. fimmtudagskvöld 28.apríl kl. 20.00 í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi. Keppt verður í flokkum áhugamanna og í opnum flokki. Skráningargjald er kr.1.000 fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur eftir það.
Skráning sendist á email neisti.net@simnet.is og lokaskráningardagur er í kvöld miðvikudagskvöld kl. 23.00.
Fram þarf að koma kennitala knapa, flokkur, IS númer hests og einnig þarf að koma fram upp á hvaða hönd skal riðið sem og í hvaða flokki er keppt. Sjá nánar á Neisti.net
Þá er stefnt á að halda Æskulýðssýningu Neista þann 30. apríl nk. í Reiðhöllinni Arnargerði
og munu u.þ.b. 30 börn taka þátt í henni.