Tölum saman | Leiðari 40. tölublaðs Feykis
Leiðarinn er skrifaður á sunnudagskvöldi og suðvestanvindurinn gnauðar á herbergisglugganum. Það er búið að vera hvasst í allan dag og verður það væntanlega eitthvað áfram. Og mikið lifandi skelfing er rokið nú leiðinlegt.
Þó október sé ríflega hálfnaður þá er hitinn um tíu gráður. Engu að síður er fyrsti vetrardagur eftir tæpa viku, laugardaginn 24. október. Þegar ég var krakki í skóla þá fannst manni veturinn sannarlega byrja þennan fyrsta vetrardag og það jafnvel þó allt væri löngu komið á kaf í snjó. Það sem maður hafði helst áhyggjur af varðandi snjóinn var að skólavöllinn við barnaskólann við Freyjugötu fennti í kaf– að ekki væri hægt að spila fótbolta í frímínútunum og eftir skóla. Það voru eiginlega mannréttindabrot.
Ég hef aldrei verið sérstaklega áhugasamur um að lenda í svaðilförum, þykir nú bara best að vera heima, en hef þó í nokkur skipti fest bílinn minn. Mestmegnis þó við bílskúrinn heima. Hef þó verið farþegi í bíl sem sat fastur í nokkur skipti. Í eitt skiptið var það með Pétri vini mínum sem bauð mér á rúntinn á LandCruiser sem hann hafði eignast og fullvissaði mig um að ekkert fengi stoppað þann dreka. Svo sátum við auðvitað fastir úti á Eyri í sakleysislegum skafli. En allt vill lagið hafa og Pétur kom bílnum á endanum úr skaflinum. Hann er ekkert ánægður þegar ég rifja þetta upp.
Pabbi var alltaf á ferðinni, enda eins konar leigubílstjóri og auðvitað bílasali. Í desember 1970 hafði hann sótt bíl suður fyrir Sölva Sölva og lenti í vonskuveðri þegar hann var kominn norður yfir Holtavörðuheiði. Hann fékk að fylgja eftir Símamönnum á Lapplander en veðrið varð gjörsamlega kolvitlaust í Línakradalnum og fór svo að Símamenn sátu fastir við afleggjara að sveitabæ. Kapparnir ákváðu að fara heim að bænum en vindurinn og hríðin voru svo illvíg að þeir enduðu á að skríða upp heimreiðina. Þetta var seint að kvöldi en á bænum var vel tekið á móti veðurbörðum mönnum, borin fram sjóðheit kjötsúpa og ekki annað tekið í mál en að gestirnir svæfu í beddum heimafólksins. Þessu gleymdi hann aldrei.
Ég veit ekki hvort fólk myndi gera þetta í dag. Hafa gildin okkar breyst það mikið á hálfri öld eða samskipti fólks? Áður en ég settist niður við leiðaraskrifin, illa tómur í kollinum, spurði ég ©Súpergreindina um hvað ég ætti að skrifa. Ein hugmynd kveikti smá tíru enda tengdist hún rabbi okkar Feykispilta fyrir helgina. Nefnilega; við þurfum ekki alltaf að vera sammála – en við þurfum að tala saman. Þetta mun víst vera stórt vandamál í Bandaríkjunum þar sem fjölskyldur splundrast því fjölskyldumeðlimir ýmist hata eða elska Donald Trump.
Mér varð hugsað til þessa um helgina þegar skeleggir kappar í flokki Viðreisnar duttu í þennan fúla pytt – að tala ekki saman. Í kjölfar þess að Jón Gnarr hætti í Viðreisnarliðinu fór Grímur Grímsson óvarlega með sannleikann og sakaði Jón um að hafa ekki haldið fundi í ákveðinni nefnd í marga mánuði. Það fylgdi ekki sögunni að nefndin hefði ekki verið til í marga mánuði. Nú varð Jón eðlilega sár og svekktur og sagði um persónuárás að ræða.
Í gamla daga hefði Grímur sennilega beðist afsökunar með því að taka upp símtólið og hringja í Jón. Samkvæmt fréttum þá baðst hann afsökunar á Facebook.
Óli Arnar Brynjarsson, ritstjóri
