Tómlegt skólahúsnæði
Það var heldur tómlegt um að litast í húsnæði Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki í morgun þegar blaðamann bar þar að garði. Fáeinir starfsmenn, sem ekki heyra undir Félag framhaldsskólakennara, eru þar að störfum en lítið fer fyrir nemendum.
Að sögn þeirra starfsmanna sem blaðamaður hitti fyrir hafa nemendur aðeins nýtt sér aðstöðu bókasafnsins til að læra og eru þá að mæta um tíuleytið á morgnana eða eftir hádegi. Starfsmennirnir voru einróma um að þeir vonuðust eftir að nemendur og kennarar kæmu sem fyrst til starfa og að vonandi myndi verkfallið ekki kosta brotfall úr skólanum.
Í dreifnáminu á Hólmavík, Hvammstanga og Blönduósi hafa nemendur mætt á staðinn og nýtt tímann til að gera eitthvað sem ekki er á stundatöflu dags daglega, enda heyra umsjónarmenn þar ekki undir Félag framhaldsskólakennara og mæta því til vinnu þrátt fyrir verkfallið. Þeir mega þó ekki sinna hefðbundinni kennslu. Þannig hafa nemendur dreifnámsins á Hvammstanga til að mynda heimsótt bæina Gauksmýri í Línakradal og Jörfa í Víðidal.
Sest var að samningaborðinu klukkan ellefu í morgun, en í dag er þriðji dagur verkfalls og svo virðist sem enn beri nokkuð á milli. Haft var eftir Ólafi H. Sigurjónssyni, formanns Félags stjórnenda í framhaldsskólum, á mbl.is í gær að málin hefðu ekki þokast áleiðis. „Ég er ekki bjartsýn á að þetta leysist á stundinni,“ sagði Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, í samtali við mbl.is áður en sest var að samningaborðinu í gærmorgun, aðspurð hvort hún teldi að verkfallinu myndi ljúka á næstunni.