Tónleikar í Blönduósskirkju.
Næstkomandi sunnudagskvöld 30. október, mun Kirkjukór Hvammstanga halda tónleika í Blönduósskirkju, og hefjast þeir kl. 20:30. Stjórnandi er Pálína Fanney Skúladóttir en undirleikari, Sólveig Sigríður Einarsdóttir.
Samkvæmt tilkynningu frá kórnum verður fjölbreytt efnisskrá og enginn aðgangseyrir tekinn fyrir.