Tónleikar í Hvammstanga- og Blönduóskirkju

Soroptimistaklúbburinn við Húnaflóa stendur fyrir tónleikum í Hvammstanga- og Blönduóskirkju 17. og 18. september.
Soroptimistaklúbburinn við Húnaflóa stendur fyrir tónleikum í Hvammstanga- og Blönduóskirkju 17. og 18. september.

Tónleikar á vegum Soroptimistaklúbbsins við Húnaflóa verða haldnir fimmtudagskvöldið 17. september í Hvammstangakirkju og föstudagskvöldið 18. september í Blönduóskirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.

Fram koma ungar konur úr Húnavatnssýslunum báðum, á öllum aldri, með fjölbreytt atriði. Söngur, fjölbreyttur hljóðfæraleikur og ljóðaflutningur. Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum sem tekið verður við frjálsum framlögum við innganginn.

 „Soroptimistaklúbburinn við Húnaflóa er að safna peningum til að halda helgarnámskeið sem öllum stúlkum á 12. aldursári í Húnavatnssýslunum báðum verður boðið á, þeim að kostnaðarlausu. Markmið námskeiðsins er að styrkja sjálfsmynd þeirra. Vonandi munu þær þiggja boð okkar sem berst þeim von bráðar,“ sagði Berglind Björnsdóttir á Blönduósi en hún er ein klúbbsystranna sem að tónleikunum standa.

„Allir flytjendurnir á tónleikunum gefa vinnu sína og erum við afskaplega þakklátar, fólk hefur verið alveg ótrúlega jákvætt og hjálplegt við þetta allt saman,“ sagði Berglind.

 

 

Fleiri fréttir