Tónlistaratriði á Skagganum 2015
Bæjarhátíðin Skagginn 2015 fer fram í fyrsta sinn á Skagaströnd um helgina og verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Samkvæmt fréttatilkynningu verður Barna- og fjölskylduskemmtunin Söngvaborg á laugardaginn kl. 13 á útisviði við Hólanes.
Söngvaborg er þekkt fyrir skemmtilegt efni í leik, tali og tónum þar sem alls konar persónur koma við sögu. Sigga Beinteins og María Björk mæta með ásamt Subba sjóræningja og leynigesti.
Tónlistardagskrá kvöldsins hefst kl. 21:00 á útisviðinu og stendur til kl. 23:00 en þá koma fram nokkur ungmenni á Skagaströnd ásamt eldri og reyndari tónlistarmönnum. Unglistamennirnir eru; Eymundur, Laufey Lind, Snæfríður, Guðný Eva, Arna Rún, Kristmundur og Jón Árni munu syngja og leika á ýmis hljóðfæri og standa fyrir tónlistarveislu undir stjórn Guðmundar Egils.
Þá ætla Nes listamennirnir Cristina og Beate sýna dans við undirleik kontrabassa.
Trúbadorinn Gunnar S. Björnsson tekur nokkur lög og hita upp fyrir ball með Trukkunum sem verður á Borginni seinna um kvöldið.
Gítarsnillingurinn Gummi Jóns ætlar að taka góða syrpu af lögum sínum eins og honum einum er lagið.
Varðeldur verður kveiktur kl 23.00 og þá mun Guðmundur Egill ásamt fleiri góðum stýra varðeldasöngvum.