Tónlistin skipar veglegan sess í menningarstyrkveitingum
Það var hátíðardagur í Kvennaskólanum á Blönduósi í gær, 3. apríl, þegar Menningarráð Norðurlands vestra úthlutaði þar menningarstyrkjum fyrir árið 2013. Úthlutun styrkjanna ber vitni um þá fjölbreyttu menningarstarfsemi sem fram fer á svæðinu, segir í fréttatilkynningu frá Menningarráði Norðurlands vestra.
Það var fjölmennt við afhendingu styrkja Menningarráðs Norðurlands vestra í Kvennaskólanum á Blönduósi. Mynd: Menningarráð Norðurlands vestra
Samkvæmt tilkynningunni skipar tónlistin að venju veglegan sess í styrkveitingunum en blandaðar menningardagskrár og bókaútgáfa eru einnig fyrirferðamikil að þessu sinni.
Úthlutað var tveimur tegundum styrkja, annars vegar stofn- og rekstrarstyrkjum en þar hlutu níu aðilar styrki samtals að upphæð 10,3 milljónir króna. Þar fóru hæstu styrkirnir til Samgönguminjasafns Skagafjarðar og Spákonuhofs á Skagaströnd.
Bryndís Zoëga hjá Byggðasafni Skagfirðinga og Hjalti Pálsson ritari Byggðasögu Skagfirðinga taka á móti styrkjum frá Björgu Baldursdóttur formanni menningarráðs. Mynd: Menningarráð Norðurlands vestra.
Hins vegar voru veittir verkefnastyrkir til 59 aðila að upphæð 21,5 milljónir króna. Hæstu styrkina þar hlutu Byggðasaga Skagafjarðar, Plús film ehf. Blönduósi, Skotta kvikmyndafjelag Sauðárkróki og Nes listamiðstöð Skagaströnd.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir styrkhafa:
Úthlutun stofn- og rekstrarstyrkja 3. apríl 2013
2.000.000 kr. Samgönguminjasafn Skagafjarðar
Stofn- og rekstrarstyrkur
2.000.000 kr. Menningarfélagið Spákonuarfur
Stofn- og rekstrarstyrkur
1.600.000 kr. Laxasetur Íslands
Stofn- og rekstrarstyrkur
1.500.000 kr. Selasetur Íslands
Rekstrarstyrkur
1.000.000 kr. Textílsetur Íslands
Rekstrarstyrkur
750.000 kr. Grettistak
Stofn- og rekstrarstyrkur
750.000 kr. Nes listamiðstöð
Stofn- og rekstrarstyrkur
500.000 kr. Kakalaskáli ehf.
Stofnstyrkur
200.000 kr. Félag áhugamanna um endurbætur Riishúss
Stofnstyrkur
Úthlutun verkefnastyrkja 3. apríl 2013
1.500.000 kr. Byggðasaga Skagafjarðar
Byggðasaga Skagafjarðar 7. bindi - ritun
1.000.000 kr. sms film/Plús film ehf
Náttúruperlur við Húnaflóa - heimildarmynd
1.000.000 kr. Skotta kvikmyndafjelag
Andlit í norðri – The North Face - heimildarmynd
1.000.000 kr. Nes listamiðstöð
Community Engagement and Arts Outreach Programme
750.000 kr. Byggðasafn Skagfirðinga
Þrjú verkefni: Lesið í landið-fræðslurit, Upplýsingaskilti á safnsvæðinu í Glaumbæ og
Unadalur/Deildardalur-byggðasögurannsókn
750.000 kr. Barokksmiðja Hólastiftis
Tvö verkefni: Barokkhátíð á Hólum og Smíði á sembal
600.000 kr. Leikfélag Sauðárkróks
Tvö verkefni: Lífsdansinn og Haustsýning
600.000 kr. Eldur í Húnaþingi
Eldur í Húnaþingi 2013
600.000 kr. Raggmann ehf.
Tónlistarhátíðin Gæran
500.000 kr. Skagfirska kvikmyndaakademían og Hátæknisetur Íslands
Sumarbúðir RIFF 2013
500.000 kr. Selasetur Íslands
Fræðslumiðstöð Húnaþings vestra
500.000 kr. Erlendur F. Magnússon
Gróður og goð. Útihöggmyndasýning
500.000 kr. Þingeyraklausturskirkja, Ingimundur Sigfússon, Stofnun Árna Magnússonar
Handritin alla leið heim – sýning Flateyjarbókar
500.000 kr. Bændasjóður Bólstaðarhlíðarhrepps
Ábúendatal – fimm hreppar í A-Hún.
500.000 kr. Ungmennasamband Austur-Húnvetninga
Húnavökurit 2013
450.000 kr. Karlakórinn Lóuþrælar
Tvö verkefni: Tónleikahald og Útgáfa geisladisks
450.000 kr. Lafleur web slf
Tvö verkefni: Fantasíu- og ljóðmyndir og Í anda Geirlaugs
450.000 kr. Fornverkaskólinn
Tvö verkefni: Vefnaður í kljásteinastað og Alþjóðlegt námskeið í torfhleðslu
400.000 kr. Sögufélag Skagfirðinga
Skagfirskar æviskrár 1910-1950 VIII bindi - útgáfa
400.000 kr. Laxasetur Íslands
Viðbót við sýningar og undirbúningur skólaheimsókna
400.000 kr. Tómas H. Árdal
Skreiðarsetur á Sauðárkróki
400.000 kr. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
Upplýsingabrunnur um gömul hús í Skagafirði
400.000 kr. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
Tvö verkefni: Sumarsýning 2013 og Stofutónleikar
400.000 kr. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
Lífsdans Geirmundar Valtýssonar
400.000 kr. Stefán R. Gíslason og Einar Þorvaldsson
Sönglög á Sæluviku 2013
350.000 kr. Drangeyjarferðir
„Baulaðu nú Búkolla mín.“
300.000 kr. Gunnlaugur Sigmarsson
Delerium Poeticum
250.000 kr. Ferðamálafélag V-Hún.
Merkt gönguleið og áningarstaðir á Hvst.
250.000 kr. Sögusetur íslenska hestsins
Ljósmyndaskráning og skönnun
250.000 kr. Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls
Útgáfa geisladisks
250.000 kr. Contalgen Funeral
Útgáfa geisladisks
250.000 kr. Sigfús Arnar Benediktsson
Útgáfa geisladisks
250.000 kr. Á Sturlungaslóð
Sumarviðburðir Á Sturlungaslóð
250.000 kr. Jónsmessunefnd Hofsósi
Jónsmessuhátíð 2013
250.000 kr. Héraðsbókasafn Skagfirðinga
Málþing um Sturlungu í Kakalaskála
250.000 kr. Blönduósbær
Tvö verkefni: Húnavaka 2013 og Saga byggðarinnar fyrir 100 árum
200.000 kr. Háskólinn á Hólum - ferðamáladeild
Menningardagskrá á North Atlantic Forum
200.000 kr. Guðbrandsstofnun
Fræðafundir
200.000 kr. Textílsetur Íslands
Listamiðstöð Textílseturs Íslands – dvalar- og verkefnastyrkir
200.000 kr. Grettistak ses
Grettishátíð 2013
200.000 kr. Kvenfélag Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps 140 ára
200.000 kr. Grundarhópurinn
Listaflóð á Vígaslóð 2013
200.000 kr. Hulda S. Jóhannesdóttir og Gunnar Æ. Björnsson
Söngvarakeppni Húnaþings vestra
200.000 kr. Menningarhúsið Miðgarður
Tónleikaröð sumarið 2013
200.000 kr. Karlakórinn Heimir
Sæluvikutónleikar 2013
200.000 kr. Skagfirski kammerkórinn
„Sólskin um mýrar og móa“
200.000 kr. Ferðaþjónustan Dæli
Efling menningartengdrar ferðaþjónustu í Víðidal
150.000 kr. Jóna Halldóra Tryggvadóttir o.fl.
Maríudagar 2013
150.000 kr. Kirkjukór og sóknarnefnd Blönduósskirkju
„Sól og vor ég syng um“ - afmælistónleikar
150.000 kr. Ólafur Þ. Hallgrímsson
„Þú vorgyðja ljúf“
150.000 kr. Skagafjarðarhraðlestin
Lummudagar 2013
100.000 kr. Guðbrandur Æ. Ásbjörnsson og Árni Gunnarsson
Lífsdansinn - handritsgerð
100.000 kr. Tónadans
Tónadans
100.000 kr. Alþýðuóperan
Gamanóperan Ráðskonuríki
100.000 kr. Kvennakórinn Sóldís
Tónleikar á Konudaginn í feb. 2014
100.000 kr. Sönghópur FEB Skagafirði
Söngskemmtun á Degi aldraðra 2013
100.000 kr. Margrét Arna Vilhjálmsdóttir
Textílsýning o.fl.
100.000 kr. Skagfirskir strengir
Tónleikar
100.000 kr. Lionsklúbburinn Bjarmi
40 ára afmælisrit og sýning