Tröllaskagahólf skilgreint sem sýkt hólf

Í ljósi staðfestra riðutilfella í Tröllaskagahólfi er hólfið nú skilgreint í heild sinni sem riðusýkt hólf næstu 20 árin frá síðasta staðfesta tilfelli, eftir því sem fram kemur á heimasíðu MAST. Þegar riðuveiki er staðfest taka gildi ýmsar takmarkanir sbr. reglugerð um útrýmingu á riðuveiki, m.a. er nú óheimilt að flytja sauðfé til lífs milli hjarða, eða hvaðeina milli bæja innan hólfsins, sem getur borið smitefni milli staða nema með leyfi héraðsdýralæknis og að uppfylltum skilyrðum.

Tröllaskagahólf bætist því í hóp sýktra varnarhólfa á landinu en þau voru fimm fyrir: Vatnsneshólf, Húna- og Skagahólf, Suðurfjarðahólf, Hreppa- Skeiða- og Flóahólf og loks Biskupstungnahólf.

Samkvæmt frétt á Mast.is er óheimilt innan sýktra hólfa að:

Flytja sauðfé til lífs milli hjarða.

  • Flytja milli bæja innan hólfsins hvaðeina, sem getur borið smitefni milli staða, svo sem hey, heyköggla og hálm, húsdýraáburð, túnþökur og gróðurmold nema með leyfi héraðsdýralæknis og að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
  • a. hey sé allt í plöstuðum stórböggum eða rúllu,
  • b. þökur séu aðeins notaðar á svæðum þar sem sauðfé kemst ekki að.
  • Flytja ull á milli bæja nema með leyfi héraðsdýralæknis.
  • Flytja fjárklippur, markatengur, lyfjadælur og annan tækjabúnað, sem óhreinkast hefur af fé eða hugsanlega smitmengast á annan hátt á sýktu svæði, til nota í landbúnaði á ósýktu svæði, án vottorðs frá héraðsdýralækni um að fullnægjandi sótthreinsun hafi átt sér stað.

Athugið að aðilar sem fara milli sóttvarnarsvæða, sýktra svæða, áhættusvæða eða ósýktra svæða, með tækjabúnað til landbúnaðarstarfa skulu fá leyfi héraðsdýralæknis og vottorð um að fullnægjandi sótthreinsun hafi átt sér stað. Þessi tæki og önnur sem óhreinkast af sauðfé á sýktum svæðum skulu sótthreinsuð samkvæmt fyrirmælum héraðsdýralæknis að lokinni notkun á hverjum stað/jörð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir