Truflanir á GSM þjónustu Símans í nótt vegna vinnu við að bæta kerfin

Vegna vinnu við að bæta GSM dreifikerfið mun Síminn gera breytingar á því aðfaranótt fimmtudagsins 3. nóvember. Af þessu tilefni verður m.a. flutningur á símstöðvabúnaði. Af þeim sökum má búast við sambandsleysi eða truflunum á GSM þjónustu í um þrjár klukkustundir eftir klukkan 01 í nótt.

 

Áhrifanna mun gæta um allt land utan vesturlands og Reykjavíkur, en aðgerðirnar munu ekki hafa áhrif á 3G dreifikerfi Símans.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir