Tryggja verður samráð við heimamenn
Skipulagi heilbrigðisstofnana verður breytt til að greiða fyrir aðkomu sveitarstjórna og starfsfólks á hverju þjónustusvæði að stjórnum þeirra, fái þingsályktunartillaga nokkurra þingmanna Vinstri grænna brautargengi. Þingsályktunin er endurflutt frá fyrra þingi og Ásmundur Einar Daðason er fyrsti flutningsmaður hennar.
Lengi vel tilnefndu sveitarstjórnir á þjónustusvæði þrjá fulltrúa í fimm manna stjórn heilsugæslustöðva, svæðissjúkrahúsa, deildasjúkrahúsa og almennra sjúkrahúsa; starfsmenn tilnefndu einn og var sá fimmti skipaður af heilbrigðisráðherra án tilnefningar. Árið 2003 var lögum um heilbrigðisþjónustu breytt á þann veg að forstöðumaður stofnunarinnar hefði einn umsjón með rekstri þeirra en stjórnirnar voru lagðar niður. Þær höfðu þó aðeins verið ráðgefandi um skipulag og þjónustu stofnananna auk þess að hafa eftirlit með rekstri þeirra.
Ásmundur segir að það hafi komið glögglega í ljós eftir að fjárlagafrumvarpið var kynnt hversu vanhugsað það hafi verið á sínum tíma að afnema stjórnir heilbrigðisstofnana. Það má ekki vera mögulegt að skerða nærþjónustu í heimabyggð með því að rústa skipulagi heilbrigðisþjónustunnar án þess að heimamenn séu hafðir með í ráðum. Ef stjórnir heilbrigðisstofnana væru endurreistar þá hefði verið lögbundið að vinna slíkar tillögur í samráði við heimamenn. Ásmundur segist telja frá leitt að fjárlagafrumvarpið geti farið í gegn óbreytt hvað þessi mál snertir og að fjárlaganefnd eigi að höfðu samráði við heimamenn að endurskoða þessar niðurskurðartillögur.
Með þessari tillögu er heilbrigðisráðherra falið að undirbúa og fram lagafrumvarp sem endurreisir stjórnir heilbrigðisstofnana í svipuðum anda og fyrr. Í gegnum þær sé samráð tryggt við samfélagið og byggt á reynslu vinnustaðarins á hverjum stað
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.