Tugir milljóna og fjöldi stöðugilda um allan landshlutann

Frá Sauðárkróki. Ljósm./BÞ
Frá Sauðárkróki. Ljósm./BÞ

Útlit er fyrir að nokkrum tugum milljóna verði varið til eflingar atvinnulífs á Norðurlandi vestra, þar af talsvert margra verkefna sem Norðvesturnefndin lagði til, að sögn Ásmundar Einars Daðasonar þingmanns Framsóknarflokksins á Norðurlandi vestra sem situr í Fjárlaganefnd Alþingis. Fjárlaganefndin var á lokametrunum við að afgreiða fjárlögin til annarrar umræðu þegar Feykir heyrði í Ásmundi í gær.   

Ásmundur sagði að talsvert margar breytingartillögur hefðu komið frá ríkisstjórn til fjárlaganefndar. Nú liggi fyrir að miklu fjármagni verði varið til byggðamála á Norðurlandi vestra. „Það er verið að undirbúa aðra umræðu fjárlaga og það liggur  ljóst fyrir að þar er verið að auka verulega í Norðurland vestra og tryggja fjármagn í talsvert margar af tillögum Norðvesturnefnarinnar,“ sagði Ásmundur. Enn ríkti trúnaður yfir einstökum verkefnum þar sem Fjárlaganefnd var ekki búin að afgreiða tillögurnar til annarrar umræðu. Ásmundur Einar staðfesti þó að miklu fjármagni verði varið í mörg af þessum verkefnum gangi þetta eftir, en um nokkra tugi milljóna er að ræða og tugi stöðugilda um allan landshlutann, þ.m.t. aukið fjármagn til Háskólans á Hólum, bæði til rekstar og til áframhaldandi uppbyggingar á útikennslusvæði. Búist er við að fjárlaganefnd Alþingis afgreiði Fjárlögin til annarrar umræðu á Alþingi öðru hvoru megin við helgina.

„Mesta innspýting inn í atvinnulífið á Norðurlandi vestra í mjög langan tíma“

„Við erum  farnir að sjá fyrir endann á vinnu nefndar sem forsætisráðherra skipaði til þess að koma með tillögur til þess að efla og styrkja stoðir atvinnulífsins hér á Norðurlandi vestra, því ber að fagna,“ sagði Stefán Vagn Stefánsson formaður Norðvesturnefndar, í samtali við Feyki. Hann sagði ánægulegt að útlit sé fyrir að margar af tillögum nefndarinnar nái í gegn. „Ef að þetta gengur eftir þá er þetta mesta  innspýting inn í atvinnulífið á Norðurlandi vestra í mjög langan tíma. Þetta er stórt skref í byggðarmálum fyrir íbúa Norðurlands vestra en þess ber að geta að menn settu þessa nefnd á laggirnar af ástæðu á sínum tíma. Hér hafði orðið mikil fækkun opinberra starfa, hlutfallslega meiri en annarstaðar á landinu, og við fórum fram á það við stjórnvöld að sú skekkja yrði leiðrétt. Þessi aðgerð er stór þáttur í því. Þetta er sá punktur þar sem við snúum vörn í sókn,“ sagði Stefán að lokum.

Fleiri fréttir