Tugprósenta hækkun póstburðargjalda hjá héraðsfréttablöðum
Ásmundur Einar Daðason alþingismaður hefur óskar eftir því að boðað verði til fundar í Umhverfis- og samgöngunefnd til að ræða tugprósenta hækkun póstburðargjalda til þeirra sem gefa út héraðsfréttablöð í áskrift. Íslandspóstur hefur sagt upp samningum við útgáfufélögin sem þýðir stóraukin útgjöld fyrir þau sem eru í áskrift.
Ef boðaðar breytingar ganga í gegn þann 1. apríl nk. eins og ráðgert er munu póstburðagjöld vegna Feykis hækka um kr. 600.000,- á ári en fyrir höfðu þau hækkað um kr. 300.000- frá 1. jan. 2012. Gerir það samtals um kr. 900.000,- á rúmu ári sem augljóslega setur ansi stórt strik í reikninginn.
-Útgáfa héraðsfréttablaða er mjög mikilvæg út frá menningar- og byggðalegum sjónarmiðum, segir Ásmundur í bréfi til Umhverfis- og samgöngunefndar og heldur áfram: -Héraðsfréttablöð eru auk þess mikilvægur vettvangur skoðanaskipta á landsbyggðinni og tryggja fréttaflutning úr öllum byggðum landsins, m.a. til stærri fjölmiðla. Í Noregi er útgáfa héraðsfréttablaða viðurkenndur hluti af byggðastefnu og er slíkur rekstur styrktur af ríkissjóði ár hvert. Íslandspóstur er fyrirtæki í ríkiseigu og fregnir af gríðarlegum gjaldskrárhækkunum mun hafa mikil áhrif á rekstrarumgjörð héraðsfréttablaða á landsbyggðinni.
Þá kemur fram í beiðni Ásmundar ósk um að fulltrúar Innanríkisráðuneytis, framkvæmdastjóri og stjórnarmenn Íslandspósts og fulltrúar frá Blaðamannafélagi Íslands komi á fundinn auk fulltrúa frá héraðsfréttablöðunum Feyki, Skessuhorni, Sunnlenska fréttablaðinu, Vikudegi, Austurglugganum og Skarpi.