Tvær vikur í Handverkshátíð
Nú eru einungis tvær vikur í Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla 6.-9.ágúst og uppsetning svæðis er komin í gang. Þessi 18 ára gamla hátíð er að breytast í skemmtilega blöndu af vandaðri sölusýningu og festivali og nýtt að sjá hvert ár.
Vel á annað hundrað sýnendur undirbúa nú komu sína norður en ásamt þeim verður fjöldinn allur af hópum og félögum sem heimsækja staðinn.
-Það sem ber auk þess að nefna er að verksvæði handverksmanna verður litríkt, tískusýningar, krambúð, sirkushópur, blöðrulist og andlitsmálun fyrir börnin, gríðarlega spennandi söguþorpi verður komið upp og tímavél spunnin með handverksmönnum, landnámsmenn í miðaldatjöldum sýna verklag gamla tímans frá miðöldum til baðstofustemningarinnar og svo til nútímamannsins, segir Dórótea Jónsdóttir framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
-Vélrúningur Birgis Arasonar úr Gullbrekku þar sem ullin er svo spunnin í réttinni og nú jafnvel jurtalituð í söguþorpinu verður alveg klárlega áhugavert að sjá. Félag landnámshænsna verður með sýningu og sína dásamlegu fegurðarsamkeppni. Kajaksmíði og vélasýning eru svo punkturinn yfir i-ið svo allir finni sér eitthvað skemmtilegt til að fylgjast með.
Vægast sagt fjölbreytt hátíð framundan hjá okkur. Allt framkvæmt með ungmennafélagsandanum þar sem hálf sveitin mun leggjast á eitt við framkvæmdina. Ungmennafélag, Hjálparsveit, Kvenfélög, Hestamannafélag, Lionsklúbbur - það er mögnuð menningin í Eyjafjarðarsveit.