Tvö af Norðurlandi vestra í U21-landsliðshópur LH

Efri röð f.v. Kristinn Skúlason form. landsliðsnefndar, Sigurður Baldur, Benedikt, Arnar Máni, Egill Már, Kristófer Darri, Hákon Dan, Matthías, Guðmar Hólm, Jón Ársæll, Hekla K. Kristinsdóttir U21-landsliðsþjálfari.
Fremri röð f.v. Védís Huld, Glódís Rún, Hulda María, Katla Sif, Signý Sól, Þórgunnur, Gyða Sveinbjörg. Mynd: LHhestar.is.
Efri röð f.v. Kristinn Skúlason form. landsliðsnefndar, Sigurður Baldur, Benedikt, Arnar Máni, Egill Már, Kristófer Darri, Hákon Dan, Matthías, Guðmar Hólm, Jón Ársæll, Hekla K. Kristinsdóttir U21-landsliðsþjálfari. Fremri röð f.v. Védís Huld, Glódís Rún, Hulda María, Katla Sif, Signý Sól, Þórgunnur, Gyða Sveinbjörg. Mynd: LHhestar.is.

Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal úr Hestamannafélaginu Þyt í Húnaþingi vestra og Þórgunnur Þórarinsdóttir, Skagfirðingi, hafa verið valin í U21-landsliðshóp LH 2022 sem kynntur var í gær. Þau koma ný inn í hópinn ásamt ásamt fjórum öðrum. Á heimasíðu Landssambands hestamanna kemur fram að Hekla Katharína Kristinsdóttir, landsliðsþjálfari U21, hafi valið 16 knapa í U21- landsliðshóp LH fyrir árið 2022. Auk Guðmars og Þórgunnar koma Arnar Máni Sigurjónsson, Egill Már Þórsson, Jón Ársæll Bergmann og Matthías Sigurðsson ný inn í hópinn.

Við val á knöpum í landsliðshópa LH er tekið tillit til árangurs í keppni, reiðmennsku, hestakosts og íþróttamannslegrar framkomu og vegur og metur landsliðsþjálfari knapana eftir árangri þeirra en ekki síður hestakosti og stillir hópnum þannig upp að styrkleikar séu í öllum greinum.

Fram kemur í frétt LH að stærsta verkefni ársins 2022 sé Norðurlandamót sem haldið verður í Álandseyjum í byrjun ágúst. Knapar í landsliðshópum LH eru í forvali þegar kemur að landliðsverkefnum en einnig er landsliðsþjálfara heimilt að velja knapa utan hópsins þegar þurfa þykir. Landsliðsþjálfarinn mun fylgjast grannt með árangri þeirra sem ekki komust í hópinn að þessu sinni, en áttu engu að síður mjög góðan keppnisárangur á liðnu keppnistímabili.

 

Eftirtaldir knapar taka sæti í U-21 árs landsliðshópnum 2022:

 

Arnar Máni Sigurjónsson, Fáki

Benedikt Ólafsson, Herði

Egill Már Þórsson, Létti

Glódís Rún Sigurðardóttir, Sleipni

Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, Þyt

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir, Sleipni

Hákon Dan Ólafsson, Fáki

Hulda María Sveinbjörnsdóttir, Spretti

Jón Ársæll Bergmann, Geysi

Katla Sif Snorradóttir, Sörla

Kristófer Darri Sigurðsson, Spretti

Matthías Sigurðsson, Fáki

Signý Sól Snorradóttir, Mána

Sigurður Baldur Ríkharðson, Spretti

Védís Huld Sigurðardóttir, Sleipni

Þórgunnur Þórarinsdóttir, Skagfirðingi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir