Tvö verkefni á Norðurlandi vestra hlutu styrki úr Sprotasjóði

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2016-2017. Alls bárust 129 umsóknir til sjóðsins og var heildarupphæð umsókna rúmar 300 milljónir króna. Veittir voru styrkir til 38 verkefna að upphæð rúmlega 60 milljónir króna. Tvö verkefni á Norðurlandi vestra hlutu styrki, annars vegar verkefni á vegum FNV og hins vegar verkefni á vegum Félags- og skólaþjónusta Austur-Húnavatnssýslu og Fræðsluskrifstofa Austur-Húnvetninga.
Í verkefni FNV, sem nefnist Fardagar fjarmenntaskólans var úthlutað 1,5 milljón króna en verkefni Félags- og skólaþjónustunnar og Fræðsluskrifstofunnar í A-Hún. nefnist Málþroski og læsi - færni til framtíðar og var úthlutað 2,5 milljón til þessa verkefnis. Samstarfsstofnanir eru Leikskólarnir Ásgarður á Hvammstanga, Barnabær á Blönduósi, Vallaból á Húnavöllum, Barnaból á Skagaströnd og Lækjarbrekka á Hólmavík, að því er fram kemur í frétt á huni.is.
Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi, eins og segir á vef sjóðsins.
Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni:
- Frumkvöðla- og nýsköpunarmennt
- Nemendur af erlendum uppruna
- Námsmat á mörkum skólastiga
Stjórn sjóðsins, sem skipuð er fulltrúum frá Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samstarfsnefnd háskólastigsins og mennta- og menningarmálaráðuneyti, mat umsóknir og gerði tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um styrkveitingar.
Lista yfir öll verkefni sem hlutu styrki má sjá hér.