Tvö verkefni við Háskólann á Hólum hljóta rannsóknarstyrki

Frá Hólum í Hjaltadal.
Frá Hólum í Hjaltadal.

Rannís hefur birt yfirlit yfir úthlutun til nýrra rannsóknaverkefna fyrir árið 2016. Alls hlutu 72 verkefni styrki, eða 25% þeirra sem sótt var um fyrir. Á vef Hólaskóla kemur fram að tveir þessara styrkja koma í hlut rannsóknarhópa við Háskólann á Hólum og eru verkefnisstjórar þau Camille Anna-Lisa Leblanc og Stefán Óli Steingrímsson, sérfræðingar við fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans.

Verkefnið Þróunarfræðilegir ferlar í litlum stofnum: Hellableikja á Íslandi, sem Camille leiðir, hlaut árlega styrkupphæð sem er um 15 milljónir auk umsýslufjár þannig að reikna megi með um 18 milljónum alls ár hvert, í þrjú ár.

Verkefni Stefáns og félaga, Dægursveiflur í virkni bleikju: Áhrif svipfars og vistfræðilegra þátta, skilar um 11 milljónum á ári og auk þess tæpum þremur í umsýslu, þannig alls um 13 milljónum á ári í þrjú ár. 

Nánar er hægt að lesa um verkefnin á vef Hólaskóla - Háskólans á Hólum.  

 

Fleiri fréttir