Týnd rjúpnaskytta fannst vegna endurskins

Björgunarsveitin Strönd á Skagaströnd var kölluð út sl. laugardag vegna týndrar rjúpnaskyttu á Árbakkafjalli.

Fram kemur á heimasíðu Björgunarsveitarinnar að þrír ungir menn höfðu farið upp Hrafndal, einn þeirra hélt þaðan upp í Spákonufell en hinir tveir fóru yfir í Árbakkafjallið en þar urðu þeir viðskila. Þegar annar þeirra skilaði sér ekki í bílinn og ekki náðist í hann í síma var farið óttast um hann, enda maðurinn ókunnugur svæðinu, eins og hinir tveir. Tveir mannanna voru með GPS og talstöðvar en sá sem týndist átti að fylgja öðrum manninum en varð viðskila eins og fyrr segir.

Útkallið barst björgunarsveitarmönnum kl. 17:50 á laugardag og var sendur mannskapur upp í Hallárdal þar sem maðurinn fannst eftir skamma leit, þreyttur og svangur í heill heilsu að öðru leyti.

Á heimasíðu björgunarsveitarinnar er tekið sérstaklega fram að maðurinn var klæddur í gulu vesti með endurskini og má að hluta til þakka því hve fljótt gekk að finna hann þar sem leitarmenn sáu glitta í endurskinið í leitarljósunum.

 

 

Fleiri fréttir