Ull flokkuð, tætt og þvegin
Tæp eitt þúsund tonn af ull koma í ullarþvottastöðina ÍSTEX á Blönduósi á hverju ári. Þar er öll íslensk ull þvegin áður en hún fer til áframhaldandi vinnslu. Fyrir um þremur árum gekk illa að koma íslensku ullinni út og var framboð mun meira en eftirspurn. Þá var skemman við ullarþvottastöðina oft á tíðum hálffull.
En svo, nánast á einni nóttu, snérist þetta við og nú eru menn í vandræðum með að anna eftirspurn. Unnið er á ullarþvottastöðinni á vöktum tuttugu tíma á sólarhring sjö mánuði ársins. Möguleiki á að flytja inn ull til dæmis frá Færeyjum hefur verið kannaður en ströng skilyrði gilda um slíkan innflutning og ekki hefur fengist leyfi til þess enn.
Fjallað var um ullarþvottastöð ÍSTEX á Blönduósi í þættinum Landanum í Ríkissjónvarpinu síðastliðið sunnudagskvöld.
Þáttinn má sjá hér: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4565161/2011/02/06/
/Húni.is