Um 8.000 kýr mjólkuðu milljón lítra af mjólk sem notuð var í bolludagsrjómann
Nær áttatíu þúsund lítrar af rjóma fóru út í verslanir og bakarí vikuna fyrir bolludag. Á vef Landssambands kúabænda segir að til þess að framleiða svo mikinn rjóma þurfi um eina milljón lítra af mjólk. Það jafngildir því magni sem fæst úr u.þ.b. 8.000 kúm á einni viku. Á Íslandi eru um 25.000 mjólkurkýr og því þurfti um 30% af heildarstofninum til þessa verkefnis.
Aðalsteinn H. Magnússon sölustjóri hjá Mjólkursamsölunni segir á naut.is að gífurlegt magn af rjóma sé notað ár hvert í kringum bolludaginn. Sé miðað við meðal viku, þá þrefaldist rjómamagnið vikuna fyrir bolludag en mikið af rjómanum er notaður á heimilum en bakarar eru einnig stórtækir notendur.