Um þriðjungur heimsækir Norðvesturland
Mikið verk er óunnið í að jafna árstíðasveiflur í ferðaþjónustu og fá erlenda ferðamenn til að fara víðar um landið . Þetta er mat sérfræðinga Boston consulting group en úttekt þeirra á stöðu og framtíðarmöguleikum ferðaþjónustunnar var í kynnt í gær í tengslum við ráðstefnuna Framtíð íslenskrar ferðaþjónustu. Í skýrslunni kemur fram að yfir sumarið koma 36% erlenda ferðamanna á Norðvesturland en aðeins 21% yfir veturinn. Frá þessu er sagt í Morgunblaðinu í dag.
Í skýrslunni er mikil áhersla lögð á að skipuleggja verði ferðaþjónustuna, innvið hennar og beina markvisst sjónum að ákveðnum markhópum ferðamanna, sem æskilegt sé að laða til landsins. Verið i þróunin eins og verið hefur megi ætla að ferðamönnum muni fjölga í 1,2 milljónir á næstu tíu árum. Ef hins vegar verður gripið til aðgerða og uppbyggingar sem þeir leggja til, s.s. að draga úr árstíðasveiflum og dreifa ferðamönnum betur um landið og ná betur til skilgreindra markhópa sé mögulegt að ríflega tvöfalda fjölda ferðamanna á næsta áratug.