Um þúsund smábátar á miðunum

Tæplega eitt þúsund strandveiðibátar voru á veiðum allt í kring um landið í gær. Er það mesti fjöldi báta á strandveiðum það sem af er sumri, en fjöldi þeirra hefur farið vel yfir þúsund á fyrri vertíðum.

Vísir.is sagði frá því í morgun að strandveiðibátar væru hins vegar komnir í helgarleyfi frá og með deginum í dag og mega ekki hefja veiðar aftur fyrr en á mánudag. Um fjögur hundruð skip eru á veiðum á Íslandsmiðum þrátt fyrir það en það eru skip og bátar með aflaheimildir, enda gott veður á nær öllum miðum í kringum landið í dag.

Fleiri fréttir