Umf. Hvöt vantar fólk - Aðalfundir í kvöld
Aðalfundir aðalstjórnar Umf. Hvatar og knattspyrnudeildar Umf. Hvatar verða haldnir í norðursal íþróttahússins á Blönduós í kvöld, mánudaginn 5. mars. Fundur knattspyrnudeildar fer fram kl. 18 en fundur aðalstjórnar verður kl. 19:30.
„Það vantar fólk í aðalstjórn og knattspyrnudeild en það er ljóst að starfið í Hvöt þrífst ekki nema takist að manna stjórnir félagsins. Komið og kynnið ykkur starfið, kannið málin og komið með hugmyndir,“ segir í auglýsingu frá Umf. Hvöt í nýjasta tölublaði Gluggans.