Umferðaróhöpp í óveðri
Björgunarsveitir í Austur-Húnavatnssýslu voru kallaðar út þrisvar sinnum í gærkvöldi vegna fólks lenti í umferðaróhöppum vegna óveðursins. Engin meiðsl urðu hins vegar á fólki.
Björgunarsveitin Strönd var kölluð tvísinnis út upp úr kl. 18 í gær. Samkvæmt heimasíðu Strandar lenti bifreið í vandræðum á veginum á milli Blönduóss og Skagastrandar, á afleggjaranum að Steinnýjarstöðum, þar sem bíllinn fór útaf og hafnaði á hliðinni. Ekkert amaði að bílstjóranum og var hann fluttur til byggða af björgunarsveitarmönnum.
Í seinna útkallinu hafði bíll farið útaf á veginum út á Skaga fyrir norðan Skagaströnd, skammt frá Ytra-Hóli. Tveir farþegar voru í bílnum og voru þau sótt af björgunarsveitarmönnum.
Þá var greint frá því á Mbl.is að erlendir ferðamenn hafi lent í erfiðleikum í Langadal og fest bifreið sína. Björgunarsveitarmenn fóru á staðinn og hjálpuðu fólkinu að losa bifreiðina. Lítið skyggni var á svæðinu og því mjög varahugavert að vera á ferðinni.