Umferðartafir á Þverárfjalli

Búast má við umferðartöfum á Þverárfjallsvegi í allt að 20 mínútur vegna fræsinga á yfirborði vegar. Vegfarendur eru beðnir um að skoða tæki sín vel og þrífa strax á næsta þvottaplani ef sementsblandaður aur hefur sest á þau. Einnig er bent á að aka frekar um Vatnsskarð, sú leið er 29 km lengri, miðað við að leiðin liggi á Sauðárkrók. Áætluð verklok eru 5. júlí 2013.

Vindur gengur niður vestanlands nú með morgninum, en hvessir á Norðurlandi. Einkum vestantil á Norðurlandi og á Ströndum verður vindur allt að 15-18 m/s og enn hvassara í hviðum s.s. við Blönduós og í Fljótum. Snýst í SV-átt og lægir talsvert síðdegis. Vegargerðin.is

Fleiri fréttir