Umhverfisráðuneytið óskar eftir rökstuðningi við neitun Svínavatnsleiðar
Umhverfisráðuneytið hefur óskað eftir því við hreppsnefnd Húnavatnshrepps að hún skýri hvað felist í ákvæðum vegalaga þar sem segir í 2. mgr. 28. gr. nr 80/2007: Ákveða skal legu þjóðvega í skipulagi að fenginni tillögu Vegagerðarinnar og skipulagsyfirvalda. Fallist sveitarfélag ekki á tillögu Vegagerðarinnar skal það rökstyðja það sérstaklega. Þó er sveitarfélagi óheimilt að víkja frá tillögu Vegagerðarinnar ef það leiðir til minna umferðaröryggis en tillagan felur í sér. Að öðru leyti fer um málsmeðferð samkvæmt skipulags- og byggingarlögum.
Eins og áður segir óskaði ráðuneytið eftir afstöðu sveitarfélagsins til þýðingar þessa ákvæðis vegalaga við gerð aðalskipulagsáætlunar Húnavatnshrepps en einnig var óskað eftir umsögn um afstöðu Vegagerðarinnar og tillagna Skipulagsstofnunar um staðfestingu aðalskipulags Húnavatnshrepps 2010-2022 með fyrirvara.
Þar sem sömu fyrirspurnum var beint til Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar var ákveðið að sveitarfélögin svöruðu sameiginlega erindi Umhverfisráðuneytisisns og fengu frest til 4. mars s.l.
Þetta kom fram á fundi hreppsnefndar Húnavatnshrepps í síðustu viku.