Umræður um handbært fé

Úr Húnavatnshreppi. Mynd: BÞ
Úr Húnavatnshreppi. Mynd: BÞ

Ársreikningar Húnavatnshrepps voru lagðir fram til seinni umræðu á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku. Fulltrúar E-lista lögðu fram bókun þar sem m.a. var bent á að handbært fé hefði lækkað um 42 milljónir á milli ára.

Eftir fundarhlé lögðu fulltrúar A-lista fram bókun þar sem bent var á að fjárfestingar hefðu verið verulegar á árinu. „Ráðist var í viðhaldsframkvæmdir sem var óhjákvæmilegt að ráðast í og voru eignfærðar fjárfestingar um 41 milljón á árin. Engin ný lán voru tekin á árinu 2015 og eldri lán greidd niður,“ segir m.a. í bókun A-listans í fundargerð frá 4. maí sl.

Fleiri fréttir