Umsjónarmaður dreifnáms í A-Hún
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki óskar eftir að ráða umsjónarmann dreifnáms á Austur-Húnavatnssýslu sem staðsett verður á Blönduósi.
Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn þarf að fylgja afrit af prófskírteini og yfirlit um fyrri störf. Umsókn skal senda til skólameistara (ingileif@fnv.is).
Helstu verkefni og ábyrgð í starfinu felst m.a. dagleg umsjón með nemendum og líðan þeirra í námsveri á Blönduósi, eftirlit með skólasókn, aðstoð við nemendur, samskipti við kennara FNV, seta í kennslustundum í námsveri og í námslotum á Sauðárkróki, agastjórnun og dagleg umsjón með námsveri og tækjabúnaði námsvers.
Hæfniskröfur:
Við leitum að fjölhæfum umsækjanda sem á gott með að umgangast ungt fólk og er tilbúinn að taka þátt í mótun á fyrirkomulagi dreifnáms í A-Hún. Æskilegt er að umsækjandi hafi háskólapróf á uppeldissviði.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100% og ráðið er í starfið til eins árs til að byrja með.
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2013.
Nánari upplýsingar veita Ingileif Oddsdóttir - ingileif@fnv.is - 455-8000, og Þorkell V. Þorsteinsson - keli@fnv.is - 455-8000.
Blönduósbær segir frá þessu.