Umsókn um fjölgun hjúkrunarrýma á Sæborg hafnað

Skagaströnd. Mynd:FE
Skagaströnd. Mynd:FE

Heilbrigðisráðuneytið telur sér ekki fært að verða við beiðni hjúkrunarheimilisins Sæborgar á Skagaströnd frá því í september þess efnis að fá úthlutað einu hjúkrunarrými til viðbótar við þau níu sem fyriri eru . Öll hjúkrunarrými á Sæborg eru fullnýtt og hefur svo verið í nokkur ár.

Málið var tekið til umfjöllunar á fundi stjórnar Félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnssýslu sl. þriðjudag. Fram kemur í svari heilbrigðisráðuneytisins að ekki sé hægt að fjölga hjúkrunarrýmum nema fjárveiting til slíks liggi fyrir. Forgangsröðun í fjölgun hjúkrunarrýma á svæðinu ráðist af þörf á hverju svæði fyrir sig og er tekið fram að fjöldi hjúkrunarrýma á Skagaströnd sé umfram þann fjölda sem gengur og gerist í sveitarfélögum af sambærilegri stærð. Á grundvelli þessa var beiðninni hafnað.

Stjórn byggðasamlagsins fól framkvæmdastjóra og forstöðumanni að halda málinu áfram og skrifa bréf til ráðuneytisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir