Umsókn um stöðu sveitarstjóra flokkaðist sem ruslpóstur

Mynd af www.blonduos.is
Mynd af www.blonduos.is

Átta umsækjendur eru um stöðu sveitarstjóra Blönduósbæjar, sem auglýst var laus til umsóknar, og rann umsóknarfresturinn út þann 2. júlí síðastliðinn.

Ein umsókn flokkaðist sem ruslpóstur og var sveitarstjórn Blönduósbæjar ekki meðvituð um umsóknina fyrr en nú um helgina.

Umsækjendur eru í stafrófsröð:

Auðunn Steinn Sigurðsson

Gunnar Rúnar Kristjánsson

Gunnólfur Lárusson

Hjörleifur Hallgrímur Herbertsson

Kristín Á. Blöndal

Linda Björk Hávarðardóttir

Valdimar O. Hermannsson

Alls sóttu 9 aðilar um stöðu sveitarstjóra hjá Blönduósbæ.  Ein umsókn barst of seint og var því hafnað og einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.

 

/Lee Ann

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir