Umsóknarfrestur um Eyrarrósina til 15. nóvember
Eyrarrósin, viðurkenning til framúrskarandi menningarverkefna á starfssvæði Byggðastofnunar, verður veitt í tíunda sinn sinn í febrúar 2014. Það eru Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík sem staðið hafa saman að verðlaununum frá upphafi. Handhafi Eyrarrósarinnar hlýtur 1.650.000 krónur og flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Aðrir tilnefndir hljóta 300.000 krónur auk flugferða.
Umsækjendur um Eyrarrósina geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð. Valnefnd tilnefnir þrjú verkefni og hlýtur eitt þeirra Eyrarrósina. Dorrit Moussaieff forsetafrú er verndari Eyrarrósarinnar.
Eyrarrósin beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Viðurkenningin er mikilvæg enda um veglega upphæð að ræða, og tilnefning til Eyrarrósar er einnig mikilsverður gæðastimpill fyrir þau afburða menningarverkefni sem hana hljóta. Fyrri Eyrarrósarhafar eru: Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi, Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Sumartónleikar í Skálholtskirkju, Bræðslan, Landnámssetrið í Borgarnesi, Aldrei fór ég suður, Strandagaldur á Hólmavík, LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði.
Umsóknarfrestur um Eyrarrósina 2013 er til miðnættis þann 15. nóvember 2013 og skulu umsóknir sendar rafrænt á eyrarros@artfest.is.