Umsóknarfrestur um menningarstyrki rennur út á fimmtudaginn
Menningarráð Norðurlands vestra vill minna á að umsóknarfrestur um verkefnastyrki rennur út fimmtudaginn 15. mars nk., kl. 24.00. Það eru því síðustu forvöð að sækja um menningarstyrk að þessu sinni.
Að venju er starfsmaður menningarráðs tilbúinn til að aðstoða við gerð umsókna ef þörf krefur.
/Menningarráð Norðurlands vestra