Undanþága samþykkt um úthlutun byggðakvóta á Blönduósi

Á fundi bæjarráðs Blönduósbæjar í síðustu viku var tekið fyrir bréf frá Atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneyti frá 19. október 2012 þar sem segir að sveitarfélagið hafi fengið úthlutað byggðakvóta sem nemur 140 þorskígildistonnum. Samþykkt var eftirfarandi undanþága frá reglugerð nr. 628/2012, um úthlutun byggðakvóta til byggðalaga á fiskveiðiárinu 2012/2013.

Samkvæmt fundargerð breytist 4. gr. reglugerðarinnar þannig: „Skipta skal 37,5% úthlutaðs byggðakvóta jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 25% skal úthlutað til fiskiskipa sem orðið hafa fyrir samdrætti í veiðum á rækju í Húnaflóa skipt í hlutfalli við hlutdeild í Húnaflóarækju 1. september 2012 og 37,5% sem verði skipt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar, í hlutfalli við landaðan afla hlutaðeigandi fiskiskips, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2011 til 31. ágúst 2012.“

Fleiri fréttir