Undirbúa eyðingu á skógarkerfli

Skógarkerfill hefur breiðst hratt út í Húnavatnshreppi. Mynd: iqz.nl.
Skógarkerfill hefur breiðst hratt út í Húnavatnshreppi. Mynd: iqz.nl.

Húnavatnshreppur hefur í fréttabréfi óskað eftir upplýsingum frá íbúum um umfang skógarkerfils í landi þeirra þar sem til stefndur að eyða honum með skipulögðum hætti næsta ár. Verður það gert með slætti að lámarki þrisvar á hverju sumri.

Skógarkerfill hefur verið að dreifa sér í sveitarfélaginu undanfarin ár og því þarf að kortleggja hvar hann er farinn að sá sér. Í fundargerð frá því í ágúst á síðasta ári segir að þetta sé vágestur sem dreifir sér hratt og einkum á svæðum þar sem búpeningi er ekki beitt, svo sem í vegköntum og skurðum eða afgirtum skurðbökkum.

Í fundargerðinni segir jafnframt að þar sem skógarkerfill nái að breiða úr sér verði gróðurþekjan mjög einsleit og kaffæri annan gróður. Þó sé hægt að koma í veg fyrir að hann dreifi sér í miklum mæli ef ráðist sé gegn honum sem fyrst. Í því skyni sé árangursríkast að slá hann sem fyrst á vorin og sem oftast yfir sumarið, þannig að hann nái ekki að sá sér. 

Fleiri fréttir