Undirbúningur Gærunnar á lokasprettinum
Þetta er fjórða árið í röð sem Gæran er haldin, en hún fer fram í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki, dagana 15. til 17. ágúst nk.
Nú styttist óðum í tónlistarhátíðina Gæruna og að sögn Laufeyjar Kristínar Skúladóttur, framkvæmdastjóra Gærunnar er allt að smella saman. ,,Við erum núna á lokasprettinum í undirbúningnum en hann gengur mjög vel.”
Framtíð og afkoma hátíðarinnar veltur mikið á því hversu margir bæjarbúar mæta og hvetja aðstandendur Gærunnar Sauðkrækinga og nærsveitamenn til að mæta og sjá landsþekkta listamenn spila.
Blind Bargain stígur á svið á Gærunni 2013.
,,Fólk á endilega nýta sér þá afþreyingu sem er í boði í heimabyggð og vera alveg óhrætt við að mæta með börnin sín líka, 18 ára og yngri mega mæta með foreldri/forráðamanni og það er ókeypis fyrir börn 12 ára og yngri (bara koma með heyrnahlífar fyrir þau). Undanfarin ár hefur verið stöðugur vöxtur í seldum miðum á Gæruna og við gerum ráð fyrir að í ár verið engin undantekning á því. Sérstaklega því við erum með svo frábæra tónlistarmenn sem spila fyrir gesti Gærunnar í ár,” segir Laufey.
Baggabandið verður á meðal hljómsveitanna sem spila á Gærunni í ár.
Fyrirtæki geta keypt miða handa starfsfólki sínu gegn magnafslætti.
Feykir mun á næstu dögum birta stuttar kynningar á hljómsveitunum.
Hér er hægt að sjá hljómsveitirnar sem spila á hátíðinni