Undirbýr hestana fyrir næsta keppnistímabil :: Íþróttagarpurinn Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal

Guðmar og Freyðir frá Leysingjastöðum í úrslitum á Fjórðungsmóti Vesturlands í sumar. Mynd: Kolbrún Grétarsdóttir.
Guðmar og Freyðir frá Leysingjastöðum í úrslitum á Fjórðungsmóti Vesturlands í sumar. Mynd: Kolbrún Grétarsdóttir.

Í byrjun desember var kunngjört hvaða ungmenni voru valin í U21-landsliðshóp Landssambands Hestamann fyrir árið 2022. Tvö af þeim sextán sem þóttu verðskulda veru í þeim hópi búa á Norðurlandi vestra, Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, úr Hestamannafélaginu Þyt í Húnaþingi vestra, og Þórgunnur Þórarinsdóttir, Skagfirðingi.

Guðmar Líndal er fæddur árið 2006, býr á Lækjamóti 2 með foreldrum sínum, Ísólfi Líndal Þórissyni og Vigdís Gunnarsdóttir. Hann á ekki langt að sækja hestaáhugann þar sem lífið snýst um hross og allar hliðar hestamennskunnar á Lækjamóti þar sem hann hefur að mestu alist upp en einnig bjó hann um tíma á Hólum í Hjaltadal. Guðmar er íþróttagarpur Feykis að þessu sinni.

Hvernig er tilfinningin að hafa verið valin í U21-landsliðshóp LH 2022? -Tilfinningin er ólýsanleg, ég hef viljað komst í landsliðið fyrir Íslands hönd síðan pabbi minn fór með landsliðinu á Norðurlandamót í Noregi árið 2016.

Segðu mér frá keppnum sumarsins og hvernig hafa þær gengið hjá þér? -Stærstu mót sumarsins voru Fjórðungsmót Vesturlands og Íslandsmót. Það gekk vel, sumt gekk betur en ég bjóst við en annað gekk ekki alveg upp.

Íþróttafélag: -Hestamannafélagið Þytur.

Helstu íþróttaafrek: Þrefaldur Íslandsmeistari í hestaíþróttum árið 2018 og einnig 2019. Ég hef tvisvar sinnum unnið Fjórðungsmót, árin 2017 í barnaflokki og árið 2021 í unglingaflokki, og ég sigraði einnig í tölti á Fjórðungsmóti 2021.

Skemmtilegasta augnablikið: -Að vinna Fjórðungsmót í unglingaflokki 2021.

Neyðarlegasta atvikið: -Ég reyni að hafa ekki áhyggjur af þannig málum.

Einhver sérviska eða hjátrú? -Ég verð alltaf að pissa áður en ég keppi.

Uppáhalds íþróttamaður? -Allir sem koma heiðarlega fram inni á vellinum sem og utan hans.

Ef þú mættir velja þér andstæðing, hver myndi það vera og í hvaða grein mynduð þið spreyta ykkur? -Ísak bróðir minn væri andstæðingurinn, ég myndi keppa á móti honum í frisbígolfi.

Hvernig myndir þú lýsa þeirri rimmu? -Við verðum báðir brjálaðir í keppnisskapi og myndum hætta.

Helsta afrek fyrir utan íþróttirnar? -Ég fór í fyrstu fimm daga göngur á hesti upp á miðhálendi Íslands í haust.

Lífsmottó: -Stefndu hátt en lifðu samt í núinu.

Helsta fyrirmynd í lífinu: -Pabbi og mamma, vegna þess að þau gera allt til þess að mér líði vel og gangi vel í lífinu.

Hvað er verið að gera þessa dagana? -Undirbúa mig og hestana fyrir næsta keppnistímabil sem byrjar í febrúar.

Hvað er framundan? -Meistaradeild Æskunnar í hestaíþróttum.

Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? Followoið mig (gudmarisolfsson) og Sindrastaði á samfélagsmiðlum.

Áður birst í 48. tbl. Feykis 2021

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir