Undirheimar í þriðja sæti í Stíl 2017

Lið Undirheima. Mynd: Facebooksíða Samfés.
Lið Undirheima. Mynd: Facebooksíða Samfés.

Þriggja manna lið frá Félagsmiðstöðinni Undirheimum á Skagaströnd tók nýlega þátt í Stíl 2017 og stóð sig glæsilega, varð í þriðja sæti í keppninni og fékk auk þess verðlaun fyrir bestu förðunina. Fulltrúar Undirheima voru þær Dagný Dís Bessadóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir.

Stíll 2017 er árleg hönnunarkeppni milli félagsmiðstöðva þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema sem að þessu sinni var gyðjur og goð. Öll vinna keppenda við módel fór fram á staðnum en allur sýnilegur klæðnaður var hannaður af hópnum fyrirfram. Markmið Stíls eru m.a. að hvetja unglinga til listsköpunar og gefa þeim aukin tækifæri til frumlegrar hugsunar og sköpunarhæfileika auk þess að vekja jákvæða athygli á því sem unglingar eru að fást við á sviði sköpunar.

F

Fleiri fréttir