Undurfallegt myndband af urtum með nýfædda kópa

Skjáskot úr myndbandi Róberts Daníels.
Skjáskot úr myndbandi Róberts Daníels.

Meðfylgjandi myndband tók áhugaljósmyndarinn Róbert Daníel Jónsson á Blönduósi á ferð sinni um Ísafjarðardjúp. Róbert hefur undanfarið fengist við að taka myndir með dróna og er sérlega fundvís á fallegt myndefni í náttúrunni, eins og þessar einstöku myndir bera með sér.

Myndbandinu fylgir eftirfarandi fróðleikur, sem fenginn er af vef Selaseturs Íslands:

Urtur kæpa einum kópi í júní og ala önn fyrir honum í 3 – 4 vikur. Kóparnir eru um 80 cm að lengd og 10 kg að þyngd við fæðingu. Þeir fæðast í gráum hárum, en kasta hvítum fósturhárum þegar í móðurkviði. Að kópauppeldi loknu fara dýrin úr hárum. Því líkur í ágúst og fer þá mökunin fram. Eftir mökun fara dýrin utar og halda til við útsker í ætisleit. Landselir ferðast lítið og einungis ung dýr flakka landshorna á milli. Eldri dýr koma ár eftir ár á sömu slóðir til kæpinga, líklega á æskuslóðirnar. Algengasta fæða landsela eru smáþorskur, karfi, síli, ufsi, síld, steinbítur, flatfiskar, loðna o. fl.

Fleiri fréttir