Ung Vinstri græn með landsfund

Ellefti reglulegi landsfundur Ungra vinstri grænna var settur í félagsheimilinu á Suðureyri klukkan 10:30 í gær. Að loknu kjöri starfsmanna fundar og kynningu á skýrslu stjórnar hélt Snærós Sindradóttir, fráfarandi formaður hreyfingarinnar, ávarp. Hún lagði mikla áherslu á þátttöku fólks í stjórnmálum og lýðræði í ræðu sinni.

 

Meðal þess sem hún velti upp var sú spurning hvort persónukjör stuðli að bættu lýðræði og að hafi skuli í huga að persónukjör gerir efnalitlu fólki sem ekki hefur ráð á að dæla peningum í eigin kosningabaráttu erfiðara um vik að ná kjöri í kosningum. Eins minnti hún félagsmenn UVG á að hreyfingin eigi að vera aðhaldsafl fyrir alla sem taka þátt í stjórnmálum, sama hvar í flokki þeir standa. Ástæðan fyrir því að forysta og kjörnir fulltrúar VG eigi það til að vera hörundssárir fyrir gagnrýni UVG er einfaldlega sú að álit Ungra vinstri grænna skiptir þetta fólk máli. Þá kom Snærós einnig inn á ábyrgð fjölmiðla í þjóðfélagsumræðunni.

 

Fjölmargar ályktanir hafa verið lagðar fyrir fundinn. Þær fjalla meðal annars um niðurskurð í velferðarkerfinu, málefni Kvikmyndaskólans, þátttöku Íslands í hernaðarstarfsemi, kynjajafnaða ríkisstjórn, kynbundið ofbeldi, aðskilnað ríkis og kirkju, stöðu hælisleitenda á Íslandi og byrjunarlaun starfsmanna ríkis og sveitarfélaga.

 

Eftir hádegi fór fram hópastarf auk þess sem almennar stjórnmálaumræður voru á dagskrá. Þá var farin söguferð um Ísafjörð með pólitísku ívafi undir leiðsögn Sigurðar Péturssonar, sagnfræðings.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir